bladiblu

Vala í lakkskónum

01.01.2008 22:44:06 / valaibala

Nýtt ár 2008

Jæja það er ekki hægt að segja að ég sé mikill bloggari. en mér finnst alveg nauðsynlegt að gera upp árið sem var að líða.

Það má segja að árið 2006 hafi verið eitt viðburðaríkasta ár sem ég hef upplifað síðan að ég man eftir mér en þá var í ég Perú og ferðaðist um suður ameríku, fór í kvikmyndaskóla í LA og upplifði ótrúlegustu hluti. Árið 2007 var mjög ólíkt árinu á undan þar sem ég var mest megnis á Íslandi.

Fyrri hluta ársins vann ég hjá náttúran.is við að byggja upp og koma á laggirnar þeirri góðu vefsíðu. 
Það var mikil og erfið vinna sem að lauk svo af minni hálfu í lok júní. 

Í apríl, maí og júní fór ég þrisvar út til Noregs í inntökupróf í norska kvikmyndaskólann, ég komst í síðasta hópinn í inntökunum fyrir 
klippideildina en komst því miður ekki inn, en aðeins sex komast inn annaðhvert ár. 

ég skellti mér til spánar á árinu með Elínu. Vorum á suður Spáni þar sem að ég bjó fyrir 3 árum síðan 
og var sérstaklega gaman að koma aftur á þennan stað. Við sóluðum okkur og drukkum og dönsuðum í viku og héldum svo heim á leið til íslands og reykjavíkur þar sem að ég stoppaði reyndar stutt en leið mín lá til Súðavíkur þar sem að ég fór í brúðkaup bróður míns. Vikan fyrir vestan var mjög andlega hreinsandi en loftið fyrir vestan er alveg yndislegt.

Við skelltum okkur í Grunnavík á slóðir langömmu og -afa og áttum yndislegan dag í grenjandi rigningu. 

Við nutum svo samvista ættingja og vina og skemmtum okkur konunglega í sprellfjörugu brúðkaupi sem 
að entist fram eftir öllu.

 

Í sumar kynntist ég svo líka honum Illuga mínum og er það eflaust það besta sem gerðist á árinu. 
Við skelltum okkur til Berlínar í október þar sem við eyddum þremur góðum dögum í æðislegri borg. 


Ég byrjaði í nýrri vinnu sem blaðamaður í byrjun september og hefur bara gengið nokkuð vel í því starfi. 

Í október eða nóvember var ég svo fyrirsæta fyrir Byko, að ég hélt fyrir einn bækling en það kom svo í 
ljós að það var miklu meira en það. Ég er búin að birtast dag eftir dag í öllum dag og morgunblöðum, 
myndir af mér hengu inní í allflestum Bykoverslunum og þá meina ég risastórar myndar og þá kannski 
25 talsins. 

Harpa frænka flutti til Íslands í september og fluttum við saman í Hörgshliðina. 

Það er svona það helsta sem gerðist á árinu. Kannski ekki það allra mest spennandi sem ég hef lifað en 
mjög gott á morgum sviðum. Hver veit svo hvað nýtt ár ber í skauti sér.

 

Gleðilegt nýtt ár 2008. 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 12:56:06 / valaibala

lífið í strætó

Ég fór í strætó í gær, eins ég er farin að gera á hverjum einasta degi núna síðan að ég byrjaði að vinna útí rassgati. Það er skemmtileg upplifun, og oft er fínt að sitja með tebollann og tónstokkinn í eyrunum og horfa á skrítið fólk. Á mánuði er ég búin að lenda í tveimur merkilegum spjöllum með miðaldra konum, önnur var fyllibytta, þó snyrtileg til fara og viðurkenndi það fúslega, ég sem blaðamaður hefði átt að bjóða konunni sígó og kaffibolla og ræða við hana um lífið en áður en ég tók þá ákvörðun hringdi síminn og strætó kom. oh þannig að það var þá búið, hún var samt helvíti hress kellann. Hin byrjaði bara að spjalla, sagði mér frá stelpu sem hafði staðið í skýlinu líka 5 mín áður, að hún væri frá Jamaica, það fannst henni heldur merkilegt. Hún var ansi hress sko. en svo kom strætó og hann var troðfullur þannig að leiðir okkar skildu fljótt.

Er það orðið þannig að pólverjar ganga bara út frá því vísu að bílstjórarnir séu pólskir? Það kom kona inní strætó í gær tjáði sig eitthvað við bílstjórann um leið og hún gekk inn á pólsku, 20 sek síðar kom vinkona hennar inn og sagði eitthvað meira á pólsku. Bílstjórann hef ég aldrei séð áður svo að það er ekki eins og hann keyri leið 18 á hverjum degi, en kannski þekktu þær bara kauða, eða kannski var hann með pólska fánann tattúveraðan á ennið, og ég sá það bara ekki. Annars er einn bílstjórinn Tyrki og hann talar nú ekki mikla pólsku. Það er svo einn sem að býður alltaf góðan daginn á skemmtilegri en bjagaðri íslensku og svo sýnir maður honum kortið og hann brosir og segir hátt gúddí gúddí. Hann er skemmtilegur.


Það er eftir allt ekkert svo slæmt að taka strætó.

áfram strætó!

gúddí gúddí


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 16:26:45 / valaibala

uppköst nei uppfærsla

ef að ég ætla mér að skrifa eitthvað hérna finnst mér lágmark að ég uppfæri tengla og annað á þessari síðu. þegar ég nenni því svo er kannski hægt að fara að bulla eitthvað hérna.

bladiblu 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 09:38:03 / valaibala

durururur

Komminn hjem!

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 05:48:10 / valaibala

komin með nóg af þessu

á meðan að ég er í fýlu út í blog central þá ætla ég að blogga á gamla bloggið mitt sem er:

www.valaibala.blogspot.com


kannski fæ ég mér nýtt blogg, hver veit!!!!


bæjó

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.09.2006 02:24:14 / valaibala

halló frá Los Angeles

bara til að rétt að segja að ég er komin, flutt inn í íbúðina sem er alveg hreint ljómandi fín. Hann Paul sem ég bý með er bara rosalega yndæll og í dag fór ég með honum og vinkonu hans að skoða ýmsa staði í LA sem var gaman. Gaman hvað fólk er indælt. Ég keypti mér tölvu í dag, Macbook Pro 17" rosa fín og ég fékk líka Ipod Nano og prentara með skanna í kaupbæti. Síðan keypti ég mér líka 3 ára tryggingu svo þetta kostaði aðeins meira en ég hafði áætlað en í staðinn fékk ég allt þetta dót og svo fæ ég meira að segja endurgreidda 279 dollara jeij. gaman gaman. annars bara allt fínt að frétta, ennþá soldið rugluð á tímamismuninum en þetta er allt að koma, fór snemma að sofa í gær er vaknaði líka snemma sem var glatað. En í kveld ætla ég út með Örnu sem er íslensk stelpa sem er hér að fara í leiklistarskóla svo það verður rosa gaman. jæja vonandi hafiði það gott í haustinu en hér er sumar og sól hehe jæja howdy

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 10:56:27 / valaibala

hæ bara rétt að kveðja

jæja þá er ég bara að fara á eftir. bara nokkuð tilbúin til að fara, þetta verður all svakalegt ævintýri.

ég ætla að reyna að blogga ef að ég hef tíma svo set ég símann minn hérna inn þegar ég er komin með hann.

annars segi ég bara bless, adios, ciao og sayonara

hittumst í desember

VaLA


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 12:40:23 / valaibala

afhverju líður tíminn svona hægt

Vá spá mín hefur aldeilist ræst, mér hefur aldrei og ég segi aldrei liðið svona í vinnunni. Tíminn liðast áfram eins hægt og snigill í háu grasi næstum fastur. mínúta fyrir mínútu. Líf mitt eins og er er afar hvernig á ég að orða það dull (á ensku). Ég er afskaplega spennt að vera að fara út en finnst mér ekkert getað einbeitt mér að þessu fyrr en ég hætti í þessari vinnu sem er að sjúga úr mér allt líf. Svo get ég ekki einu sinni farið út í hádegismat því ég er ekki með neinn bíl og ég er búin að fara 700000 sinnum í kringluna og ég hata hana núna. Mötuneytið er leiðinlegt og ég myndi helst bara vilja komast héðan. en það er ekki í boði. ég er svo stutt frá því að ganga héðan út jafnvel þó að ég eigi bara 2 og hálfan vinnudag eftir.

Eftir viku og 3 daga verð ég svo komin til LA, en hvað það verður ljúft. Ég hef rétt tæpa viku til að koma mér fyrir og ganga frá öllum þeim málum sem þarf að ganga frá. Síðan byrjar skólinn 14. það verður gaman, þetta byrjar bara strax á fullu, gaman gaman, ég er víst alla daga allan daginn í skólanum svo ég verð örugglega ekki í miklu sambandi við ykkur kæru vinir en ég skal gera mitt besta.

hvað tekur svo við eftir að ég kem heim er óráðið en það kemur örugglega allt í ljós að lokum.

ég hef nákvæmlega ekkert skemmtilegt að segja, þið verðið að afsaka ástandið sem ég er í. en ég ætla að gera mitt besta að vera jákvæð eins erfitt og það er nú, verð jákvæð eftir að klukkan slær 16.00 fimmtudaginn 31. ágúst  2006.

veriði skemmtileg við mig plís.

sayonara

p.s. ég er búin að setja nokkar nýjar myndir inná mynda síðuna 06 reunion og 06 allskonar. svo koma fleiri næstu daga


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.08.2006 09:51:32 / valaibala

sumarið að renna sitt skeið

Halló

ég er hætt að vera veik, en það er samt eins og einhver lægð liggi yfir þessa dagana. Ég er voða blue yfir því að Helga og Dísa eru að fara utan í nám í mange mange ár. Helga í læknisfræði í endalaus ár (ætla ekki að hugsa frekar útí það) og Dísa í leiklist í nokkur ár. Svo er Elín eins og er út í Ungverjalandi og þannig að það eru ekki margir eftir á landinu til að leika við Völu. Kasóléttu konurnar and that's about it :( Svo á ég engann "vin" (eins og amma segir) svo mér líður eins og síðustu vikurnar hér á landi verði afskaplega rólegar, semsagt ég uppí rúmi með bók eða að horfa á einhverja af þeim fjölmörgu myndum sem ég þarf að sjá. Ætla að hætta viku áður en ég fer í vinnunni svo ég hef smá tíma til að hafa allt til að slappa líka kannski aðeins af.

Annars leikur lífið við mér, ég meina ég er að fara til LA það eru ekki allir að fara að gera. Sumir eru bara að halda áfram að vinna og aðrir verða bara að læra hérna heima. Ég er montin :)

Skemmtileg helgi framundann, reunion á föstudaginn þar sem verður dansað brjálað við Prodigy og 2 Unlimited, eins og í tónabæ í gamla daga. Ég tek samt aldrei að mér svona aftur. Þetta er búið að vera vægast sagt tímafrekt og erfitt.

svo kemur menningarnótt, það er alltaf stuð. bakpokafyllerí í bænum og svona, guð þessi helgi verður bara alveg eins og í gamla daga, en skemmtlegt!

Farewell kæru vinir sem eruð að stinga af núna á næstunni,

síðan hittumst við aftur á miðri leið, við eigum heiminn og allt sem í honum er. :lol:


» 8 hafa sagt sína skoðun

10.08.2006 14:53:17 / valaibala

pælingar

Hæ,

ég er heima, veik. Búin að vera það í nokkra daga. Ég er búin að vera heima 2 og hálfan dag sem mér finnst alveg met þar sem ég er nú svo þrjósk á því að vera heima því allir gætu haldið að ég væri bara aumingi sem nennti ekki í vinnuna. En svo er ekki. Ég er með hita, sem að ég fæ aldrei en núna er ég greinilega með hita, mér er kalt og svo svitna ég eins og brjálæðingur og svo er mér kalt. en svo er ég líka með leiðinlegan hósta og kvef. en verð hress á morgun, veit það.

Pabbi setti mér heimavinnu þar sem ég ákvað að vera heima í dag. Hann sagði mér að horfa á myndir sem ég þarf að sjá. Veistu nákvæmlega heimavinnan sem ég þurfti og hef ekki getað sett sjálfri mér. Byrjaði á því að horfa á Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Mjög vel unnin mynd. Góð mynd til að horfa á í ruglinu sem mér finnst ég vera í. Vitiði að þegar maður eyðir of miklum tíma með sjálfum sér að gera ekki neitt þá fer maður að hugsa of mikið. Að horfa á þessa mynd fékk mig til að hugsa enn meira. Þessi mynd er ruglingsleg og fær mann til að hugsa og verða ruglingslegur. Myndi maður ef maður gæti, eyða minningum um einhvern eða eitthvað sem á þeirri stundu sem maður tæki þá ákvörðun væri svo sár að maður héldi að manni liði betur án hennar. Myndi maður gera það?? Ég hef alltaf reynt að lifa eftir lífsreglum sem ég setti sjálfri mér og mér finnst það meika sens. Aldrei að sjá eftir hlutum sem þú hefur, gert, læra af mistökunum. En þó ég lifi eftir þessu eru samt hlutir sem ég myndi gera öðruvísi ef ég myndi fá að gera þá aftur, aðstæður sem ég myndi forðast og svoleiðis. Myndi ég ef ég gæti, eyða minningum sem mér þættu óþægilegar og þar með eyða tilfinningum sem mér þættu óþægilegar. og ef ég myndi gera það liði mér í alvörunni betur. Pæling

En maður hugsar of mikið einn heima, veikur, stressar sig á tilgangi lífsins og stressar sig á framhaldinu og fortíðinni meðan að maður ætti hreinlega bara að sleppa því að hugsa. Koma sér úr heimspekilega þunglyndis mótinu. Klæða sig úr fötunum, setja góða tónlist á og dansa, dansa, dansa, dansa. en ég segi pass núna. gæti orðið kalt

en ég er að fara út eftir nákvæmlega 27 daga, nægur tími til margra hluta. t.d. að stressa sig á þessu, en lofa að gera það ekki, hef fullt traust á sjálfri mér.

afsakið þunga færslu, þurfiið ekkert að lesa þetta frekar en þið viljið.

bara veikindin sem tala.

hóst


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 14:19:09 / valaibala

ú ég sit í vinnunni og svei mér ef það er ekki bara eitthvað að gera við að raða gíróseðlum í stafrófsröð fyrir gjaldkera auglýsingadeildar. ef hún væri ekki svona næs þá hefði ég gelt.

Sólin er ekki lengur afsökun fyrir drykkju og sulli á virkum dögum. ég er núna búin að gera þetta tvisvar á tveimur vikum, vera bara að djamma á virkum degi. Samt í raun ekkert slæmt þannig séð við þetta, ég er ung, laus og liðug, barnlaus og þannig fólk á auðvitað skilið að djamma. en að vera þunnur á afnotadeild ríkisútvarpsins er ekki fólki bjóðandi. jesú maría, hvað eg er þreytt í augunum mínum.

Skemmtileg vika síðasta vika, hún var stutt og laggóð.

á fimmtudag fór ég á tónleika Belle and Sebastian. Það var æðislega gaman alveg gebblað og Emilíana var líka skemmtleg en Belle and Sebastian alveg frábær. Fyrir tónleikana fórum við útað borða á Shalimar en ég er búin að bíða lengi eftir því að fara á þann stað, indverskur matur í topp formi, fyrir konur og kalla, krakka með hatta og kalla með skalla. við skelltum okkur svo á smá djamm krakkaskrattarnir sem var gaman.

ég gat aðeins stungið af útúr bænum á föstudag það var eins ljúft og heitt kakó á köldum vetrardegi. Ég og þær tvær Elínbet komu með og eyddum við nokkrum tímum í pottinum í blíðskapar veðri með einn karlkyns með okkur, brjálaða hundinn Loka. Nutum vel að pósa í módelmyndatöku, gera challenge og vera í raunveruleikaþætti.

Sunnudagurinn var yndislegur, ég svaf meira en ég hef gert á nokkrum árum. Fór svo með sangríu og Sigurrósartónleikana á Klambratúni sem er nú bara alveg við hliðina á mér. Mér fannst alveg yndislegt þarna, ég hef aldrei farið á Sigurrósartónleika og ég hef aldrei farið á tónleika á Klambratúni svo þetta var alveg yndislega skemmtileg reynsla. Fallegt veður og undurfagur stemmning. Samt alveg ótrúlegt hvað það er alltaf mikið af kærustupörum alltaf í kringum mig, oh þurfti næstum að æla. ég var sko ekki öfundsjúk við skulum hafa það á hreinu. ég er sko mest sátt við að vera ein núna, ég meina ég er svo mikið catch að ég get ekkert verið með hverjum sem er skal ég sko segja ykkur. Totally gonna láta strákana bíða í röðum áður en ég ákveð mig hvern ég vel. Það er alveg komin smá röð fyrir utan húsið mitt núna, læt þá bara bíða. og ég er sko ekkert að dissa og traðka á your happiness happy kærustupar en veist þetta er bara svo in my face.

en ég er sko að fara til LA og þarf verð ég aðal pían á svæðinu svo Lindsay Lohen you better get that second breast enlargement!!

nú er ég alveg að fríka á þynnkunni og nákvæmlega ekkert sem ég segi meikar neinn sens svo ég ætla ekki einu sinni að lesa yfir það sem ég er búin að skrifa en læt þetta duga í bili.

p.s. dísa, rosalega ertu mikill brandarakall. ojnk ojnk

peace


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 11:17:57 / valaibala

10204730749374937

sjúddírarí rei

hjá mér er föstudagur. tóm gleði.

ég tók mér nefnilega frí á morgun og mánudag. ætla(ði) á borgarfjörð eystri en það virðist vera frekar meira en minna vesen að finna eitt stykki automobile. Erum ekki búnar að ákveða hvað við gerum. Væri svo ágætt að komast úr blessuðu Reykjavíkinni.

Samt gaman í kvell, tónleikar og sonn. og svo verður helgin ef ekki verður farið í roadtrip tileinkuð gömlum klassískum myndum sem ég hef frestað að sjá alltof lengi, t.d. Casablanca, Beetle Juice, Teen Witch, Citizen Kane, væri gaman að reyna við Fightclub aftur, nennir eitthver að lána mér hana? gladiator sem ég hef líka alltaf sofnað yfir á fyrstu 12 mínútunum ég hef svo fáranlega lítið úthald þegar ég er uppí rúmi að horfa, þannig að ég þetta skipti ætla ég að finna mér fáranlega óþægilega stól til að sitja á. hlýtur að virka.

Ég fór á leiksýningu, reyndar tvisvar í þessari viku, sama leiksýningin, hjá henni dísu minni og co. Flott hjá krökkunum, þrefalt húrra fyrir þeim. húrra húrra húra, þau lengi lifi.

armbeygjur eru frá djöflinum, jafnvel þó að ég trúi ekki á djöfulinn held ég að hann hafi uppgötvað armbeygjur. ég þykist vera svo geðveikt íþrótta og heilsufrík núna sem að ég er upp að vissu marki en hef einhvern veginn talið sjálfri mér trú um það að ég sé brjáluð heilsufrík. rugl. en ég er farin að stunda líkamrækt af kappi eða allaveganna svona þegar ég get og nenni, meira að segja farin að mæta með nesti í vinnuna, salat með túnfiski, spínati og tómötum, eylítið af balsamic ediki og virgin ólífuolíu. hljómar vel en er ekki ýkja spennandi dag eftir dag. ég mæti í ýmsa tíma body pump, body combat og svo æfi ég og lyfti sjálf. ég er eins dugleg og ég get og ég held stundum að ég líti út eins og pró vaxtarræktartröll þar til kemur að helvítis armbeygjunum. þá lít ég út eins og hvalur sem hefur rekið uppí fjöru, eitthvað að reyna að komast útí sjó aftur en bara ekki hægt. aumingi. hata armbeygjur, ætti frekar að eyða tímanum í one pakkið mitt.

kom lítil skotta upp í rúmið mitt í gær, SILFURSKOTTA ég fríkaði út og sló hana alveg í hel og í mask með fjarstýringunni minni, þoli ekki boðflennur.

ullabjakk

annars óska ég ykkur bara gleðilegra vikuloka

atsjú

guð hjálpi þér


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 08:59:40 / valaibala

summar

góðir hálsar.

nú er sumarið hálfnað myndi ég segja, sorglegt en satt að það er farið að verða dimmara á næturna, en sólin á víst að verða tíðari gestur allaveganna næstu viku hér í höfuðborginni. Það gleður mig.

Sumarið virðist alltaf fara á annan veg heldur en planað. Það á alltaf að vera mikið um útilegur, bjór og grill, kaffihús og hvítvín, stráka og partý og svo margt annað. Því miður þá hef ég ekki gert eins mikið og ég hefði viljað þetta sumar. Ég hef einu sinni farið í sumarbústað, eina nótt, ég hef afskaplega lítið farið á kaffihús, ætli ég hafi ekki borðar grill mat svona þrisvar, en bjórinn og hvítvínið ásamt partýunum hefur ekki vantað. Strákar koma svo og fara (þetta á ekki að hljóma lauslætislega!!!) meðan að maður tekur hlutunum ekki of hátíðlega þá geta þeir bara verið mjög skemmtilegir. Samt vil ég koma með einn svona gullmola. Sættu þig aldrei við minna en það sem þú átt skilið og þú átt alltaf það besta skilið. ég veit ekki hvort ég er að meika nokkuð sens hérna. en þetta er nú bara blog ekki skáldsaga.

Ég hef ekki yfir neinu að kvarta samt. Fyrri hluta ársins eyddi ég á yndislegum stöðum í Suður-Ameríku með yndislegu fólki frá ótal löndum og heimsálfum sem ég kynntist í Perú og á ferðalagi mínu. Sumarið hefur þrátt fyrir það sem að ofan er ritað verið alveg yndislegt og alltaf virðist maður kynnast nýju frábæru fólki. Svo eru bara spennandi hlutir framundan, tónleikar, sumarbústaðaferð, partý og síðast en ekki síst för mín til LA. En það verður alveg mergjað!! ýkt töff!! :D bara ástæða til að brosa.

en ein pæling, hverjir í ósköpunum eru þeir 150-200 manns sem fara inná þessa blogg síðu daglega, ég þekki ekki svona marga. allaveganna ekki sem að tala íslensku. langar einhverjum kannski að kommenta, skiptir engu máli hver þú ert eða hvað þú hefur að segja.

with lotsa love

vala í bala

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.07.2006 16:06:03 / valaibala

*

Jafnvel þó að viðbrögð hafi verið dræm þá hef ég komist að niðurstöðu. Ég ætla bara að halda áfram að vera bjartsýn, hef heyrt og veit sossem vel að svartsýni kemur þér ekki neitt. og vitiði hvað ég held barasta að maður verði kannski ekki fyrir mikið minni vonbrigðum og þegar maður er bjartsýnn.

ég ætla líka eilíft og alltaf að hlusta á þennan truflaða norska eurovision smell, Optimist með Jahn Teigen. hér er textinn:

Jeg står i mørke og skimter lyset i det fjerne
Det er så kalt jeg søker varme fra en stjerne
Jeg tenker opp når jeg er nede for jeg er en Optimist

Jeg har et håp hver gang jeg går omkring i blinde
Det finnes en sol i oss som snart skal begynne å skinne
Som får meg opp når jeg er nede om og om og om igjen

Jeg har en drøm at vi tar vare på hverandre
Og gir det beste i oss selv til alle andre
Jeg tenker opp når jeg er nede om å om å om igjen

Optimist, jeg vet det går bra til sist
Så lenge jeg lever her er jeg en Optimist
Jeg er en Optimist

Jeg har en tro jeg har ett mål som jeg skal finne
Jeg har en kraft og det er viljen til å vinne
Det får meg opp når jeg er nede om og om og om igjen

Vil at livet blir en dans i lyset
En dans for håpet og en dans for gleden
En dans i frihet og en dans for freden
Det skal gåååååååååå

Optimist, jeg vet det går bra til sist
Så lenge jeg lever her er jeg en Optimist

Optimist, jeg vet det går bra til sist
Så lenge jeg lever her er jeg en Optimist

Optimist, jeg vet det går bra til sist
Så lenge jeg lever her er jeg en Optimist
Jeg er en optimist

já ég er bjartsýnismanneskja

peace


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 08:25:39 / valaibala

pælingar

ég ætla að leyfa mér að vera með pælingar í dag, því það rignir svo mikið úti og það er líka dimmt og þetta er svona dagur sem ég myndi helst bara vilja vera uppi rúmi. Pæling: Ég hef alltaf eða allaveganna síðan að ég man eftir mér verið afskaplega bjartsýn manneskja, ef að ég er að horfa á fótboltaleik þá er ég bjartsýn fram á síðustu sekúndu, ef ég tek að mér verkefni þá er ég þó að ég sé stundum að verða vitlaus á því alltaf bjartsýn á það að ég verði ánægð eftir að það er búið og að verkefnið verði gott. Allt í rauninni sem ég tek mér fyrir hendur, það geri ég með því að hugsa að það muni ganga vel, semsagt alltaf sama bjartsýnin hjá mér. En á ég að halda áfram að vera svona bjartsýn á hluti ef að ég hef komist að því trekk í trekk að það leiðir bara til þess að ef að hlutirnir fara ekki á þann veg sem ég hefði viljað verð ég fyrir enn meiri vonbrigðum en ef ég hefði bara verið svartsýn á þá til að byrja með. Bjartsýni eða svartsýni, það er spurningin! endilega kæru vinir, ég bið ekki um meira en að þið segið mér hvað ykkur finnst, og ef þú ert ekki vinur minn þá samt endilega láttu skoðun þína í ljós. Vala (ein peran sprungin)

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3